Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Björn Thor og Unnur Birna 
á stórtónleikum í Hljómahöll 6. mars
Fimmtudagur 5. mars 2020 kl. 13:43

Björn Thor og Unnur Birna 
á stórtónleikum í Hljómahöll 6. mars

Þann 6. mars verða stórtónleikar í Hljómahöll þegar hljómsveit Unnar Birnu og Bjössa Thor koma í Reykjanesbæ. Það má með sanni segja að Unnur og Björn séu ansi stórir póstar í íslenku tónlistarlífi en þau hafa spilað með fjölmörgum tónlistarmönnum hér heima og starfað mikið erlendis, Unnur t.d með Jethro Tull og Björn ferðast vítt og breytt í sínu eigin nafni, með Guitar Islandico og Robben Ford. Þeim til halds og traust er rythmaparið Skúli Gíslason og Sigurgeir Skafti en þeir hafa verið að sanna sig sem betri spilarar landsins hvor í sínu fagi. Hljómsveitin var þungamiðjan á einstaklega velheppnaðri gítarhátíð Björns í nóvember. Var það viðburður sem lengi verður í minnum hafður.

Þau hafa verið á miklu flugi síðasta árið og komið víða við. Hvar sem þau hafa komið hafa þau vakið sértaklega athygli fyrir einstaklega flotta og vandaða spilamennsku og eru margir farnir að telja til betri tónleikabanda landsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nú um síðastliðina helgi spiluðu þau fyrir fullum húsum í Hörpu og hins vegar í Skyrgerðinni í Hveragerði. Hljómsveitin heldur sínu ferðalagi áfram í mars.

Unnur Birna, fiðla/söngur

Björn Thoroddsen, gítar

Skúli Gíslason, trommur

Sigurgeir Skafti Flosason, kontrabassi.

Tónleikar hefjast klukkan 21:00 föstudaginn 6. mars í Hljómahöll, miðasala á tix.is.

(Fréttatilkynning).